Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   sun 12. maí 2013 13:44
Elvar Geir Magnússon
Watford í úrslitaleikinn á ótrúlegan hátt
Watford 3 - 1 Leicester
1-0 Matej Vydra ('15)
1-1 David Nugent ('19)
2-1 Matej Vydra ('65)
3-1 Troy Deeney ('97)

Lokamínúturnar í leik Watford og Leicester voru með hreinum ólíkindum en liðin léku í dag sinn síðari leik í undanúrslitum umspils 1. deildarinnar.

Leicester leiddi 1-0 eftir fyrri leikinn.

Staðan var 2-1 fyrir Watford þegar venjulegum leiktíma var lokið en Tékkinn Matej Vydra skoraði bæði mörk liðsins, það fyrra var stórglæsilegt.

Allt stefndi í framlengingu þar sem útivallarmarkareglan er ekki í gildi í umspilinu.

Þegar komið var fram yfir venjulegan leiktíma og uppgefinn viðbótartíma fékk Leicester umdeilda vítaspyrnu. Antony Knockaert, 21 árs Frakki, steig á punktinn en Manuel Almunia, markvörður Watford varði. Boltinn barst aftur Knokcaert en aftur varði Almunia.

Watford fór í sókn og skoraði mark sem tryggði liðinu sæti í úrslitaleiknum á Wembley, Sóknarmaðurinn Troy Deeney skoraði og allt ætlaði um koll að keyra á vellinum.

Gianfranco Zola er knattspyrnustjóri Watford en liðið mætir Brighton eða Crystal Palace í úrslitaleiknum um laust sæti í úrvalsdeildinni.

Leicester situr eftir í Championship-deildinni en Knokcaert hágrét eftir leikinn á meðan áhorfendur Watford geystust inn á völlinn.


Slapp
banner
banner
banner