Heimild: Sky
Dave Whelan formaður Wigan telur að Roberto Martinez gæti haldið áfram með liðið á næstu leiktíð. Martinez gerði liðið í gær að enskum bikarmeisturum.
Martinez er talinn einn af þeim sem gætu leyst stöðu David Moyes í stjórastöðu Everton en hann hættir í sumar til að taka við Manchester United.
,,Roberto mun taka sína eigin ákvörðun. Roberto er alltaf að segja, 'Ég elska Wigan, ég verð áfram með Wigan," sagði Whelan við fjölmiðlamenn.
Wigan vann Manchester City í úrslitaleik enska FA bikarsins í gær með marki Ben Watson í uppbótartíma.
,,Þegar rétti tíminn kemur mun hann fara til stórs félags, ég efast ekkert um það. En ég held að hann gæti haldið áfram hjá Wigan," hélt Whelan áfram.

