Liverpool var mjög sannfærandi í sínum fyrsta leik á þessu undirbúningstímabili. Ensku liðin eru að hefja undirbúningstímabil sitt, en Liverpool mætti Tranmere Rovers í kvöld.
Liverpool mætti með sterkt byrjunarlið til leiks, en þeir skiptu út öllu byrjunarliðinu sínu og mættu með nýtt lið í seinni hálfleikinn.
Liverpool mætti með sterkt byrjunarlið til leiks, en þeir skiptu út öllu byrjunarliðinu sínu og mættu með nýtt lið í seinni hálfleikinn.
James Milner er alltaf öruggur á punktinum og hann skoraði fyrsta markið. Serbinn Marko Grujic bætti við öðru fyrir lok fyrri hálfleiks.
Í seinni hálfleiknum bættu síðan hinir efnilegu Pedro Chirivella og Ben Woodburn við mörkum, lokatölur 4-0.
Swansea var einnig að spila í kvöld, þeir mættu neðri-deildarliði Barnet og þurftu að sætta sig við óvænt tap.
Gylfi Þór Sigurðsson, sem hefur verið sterklega orðaður við brottför frá Swansea í sumar, byrjaði á varamannabekknum í kvöld, en hann kom inn í hálfleik og fékk þá fyrirliðabandið.
Tranmere Rovers 0 - 4 Liverpool
0-1 James Milner ('34, víti)
0-2 Marko Grujic ('42)
0-3 Pedro Chirivella ('50)
0-4 Ben Woodburn ('79, víti)
Barnet 1 - 0 Swansea
1-0 John Akinde ('41)
The Reds will field a team for each half today! 🔴
— Liverpool FC (@LFC) July 12, 2017
Watch live: https://t.co/0YnXR2WrtR pic.twitter.com/LEsJRGU3a5
Swans XI: Mulder, Naughton, Davies, Bartley, Roberts, King, Grimes, Fer, Sigurdsson (Capt), Narsingh, Ayew.
— Swansea City AFC (@SwansOfficial) July 12, 2017
Athugasemdir