Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 12. ágúst 2017 14:12
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Einkunnir Watford og Liverpool: Flott frumraun Salah
Mynd: Getty Images
Watford og Liverpool gerðu 3-3 jafntefli í öðrum leik ensku úrvalsdeildarinnar. Leikurinn fór fram í hádeginu.

Watford komst tvisvar yfir í leiknum, en að lokum jöfnuðu þeir í 3-3 með marki í uppbótartíma í þrælgóðum leik.

Sky Sports tók saman einkunnir fyrir leikinn og þar fær Mohamed Salah, leikmaður Liverpool, hæstu einkunn. Salah var að spila sinn fyrsta leik, hann náði að skora og var góður.

Hér að neðan eru einkunnirnar.

Einkunnir Watford: Gomes (7), Janmaat (5), Kaboul (7), Britos (7), Holebas (6), Chalobah (6), Doucoure (7), Amrabat (6), Cleverley (7), Pereyra (6), Okaka (7).

Varamenn: Femenia (6), Gray (6), Richarlison (6)

Einkunnir Liverpool: Mignolet (6), Alexander-Arnold (6), Lovren (5), Matip (5), Moreno (6), Henderson (6), Can (7), Wijnaldum (6), Salah (8), Mane (7), Firmino (6).

Enginn af varamönnum Liverpool spilaði nægilega mikið til að fá einkunn úr leiknum.

Maður leiksins: Mohamed Salah
Athugasemdir
banner
banner