banner
   lau 12. ágúst 2017 21:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Sofiane Feghouli á leið til Galatasaray
Sofiane Feghouli er á leið til Tyrklands.
Sofiane Feghouli er á leið til Tyrklands.
Mynd: Getty Images
Sofiane Feghouli leikmaður West Ham er á leið til Tyrklands eftir aðeins eitt tímabil á Englandi.

Galatasaray er félagið sem er að ganga frá kaupunum á Feghouli en talið er að hann muni kosta félagði 4 milljónir punda.

Þessi 27 ára landsliðsmaður Alsír fór til Tyrklands í dag til að klára félagsskiptin.

Sofiane Feghouli kom til West Ham síðasta sumar frá Valencia á Spáni.

Hann kom við sögu í 21. leik fyrir West Ham í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og skoraði í þessum leikjum þrjú mörk.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner