Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 12. september 2017 22:30
Þórarinn Jónas Ásgeirsson
Klopp staðfestir að Karius byrji gegn Sevilla
Mynd: Getty Images
Loris Karius, markvörður Liverpool, mun standa á milli stanganna þegar Liverpool mætir Sevilla í Meistaradeild Evrópu á morgun.

Liverpool komst í riðlakeppnina með því að leggja Hoffenheim af velli í tveimur leikjum í forkeppninni en Simon Mignolet var í marki Liverpool í þeim leikjum.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, staðfesti á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn Sevilla að Karius myndi vera í markinu á morgun.

„Það sem ég get sagt er að ef ekkert gerist í nótt, þá mund Loris Karius spila á morgun - það er rétt," sagði Klopp þegar hann var spurður út í hvort Þjóðverjinn myndi spila í Meistaradeildinni í vetur.
Athugasemdir
banner
banner