Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 12. október 2015 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Football 365 
Hazard: Ég er í versta formi lífs míns
Eden Hazard
Eden Hazard
Mynd: Getty Images
Eden Hazard hefur viðurkennt það að hann sé í versta formi ferils síns og að hann eigi ekki lengur öruggt sæti í liði Chelsea.

Hazard á ennþá eftir að skora á þessu tímabili, en hann hefur þó náð að leggja upp tvö mörk í deildinni.

"Þetta er í fyrsta sinn á ferli mínum sem ég hef gengið í gegnum jafn erfiða hrinu og þessa," sagði Hazard.

"Ég get ekki alveg útskýrt þetta. Það eina sem ég veit er að ég verð að leggja harðar að mér og koma tvíelfdur til baka."

"Hjá Chelsea erum við áhyggjufullir bæði sem einstaklingar og sem liðsheild og það er bara eitthvað sem við verðum að laga."
Athugasemdir
banner
banner