mán 12. október 2015 21:38
Ívan Guðjón Baldursson
Klopp: Ætla ekki að lokka leikmenn Dortmund til Liverpool
Mynd: Getty Images
Jürgen Klopp segist ekki ætla að reyna að lokka helstu stjörnur Borussia Dortmund yfir til Liverpool-borgar.

Klopp er nýtekinn við Liverpool og hefur félagið strax verið orðað við helstu leikmenn Dortmund sem létu ljós sitt skína undir stjórn Þjóðverjans.

Klopp neitaði því að hann myndi reyna að fá menn á borð við Ilkay Gündogan, Marco Reus, Mats Hummels og Neven Subotic á Anfield.

„Ég ætla alls ekki að lokka helstu stjörnur Dortmund til Liverpool," sagði Klopp við þýska miðilinn Bild.

„Mér er alveg sama hversu mikinn pening ég má nota í janúar. Það er bara október og ég veit ekki einu sinni hvað það eru margir leikir til jóla. Við eigum marga leiki eftir og munum fyrst og fremst einbeita okkur að því að nota þá leikmenn sem eru þegar til staðar."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner