Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 12. október 2015 12:00
Hafliði Breiðfjörð
skrifar frá Konya
Myndir: Nammidagur hjá íslenska landsliðinu í flugvélinni
Icelandair
Heimir býður upp á nammi. Við hlið hans er Guðmundur Hreiðarsson markmannsþjálfari og fyrir aftan þá fjölmiðlafulltrúinn Ómar Smárason.
Heimir býður upp á nammi. Við hlið hans er Guðmundur Hreiðarsson markmannsþjálfari og fyrir aftan þá fjölmiðlafulltrúinn Ómar Smárason.
Mynd: Sigurjón Ragnar
Strákarnir í íslenska landsliðinu tóku vel á móti fólki í flugvélinni sem flutti liðið til Konya í Tyrklandi í gær og gáfu viðstöddum nammi.

Icelandair bauð upp á leiguflug fyrir strákana í leikinn og með í för voru allir starfsmenn KSÍ, fjölmiðlar og stuðningsmenn Íslands.

Þegar fólk gekk inn í flugvélina sat Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari á fremsta bekk og bauð öllum sem mættu upp á súkkulaði.

Framar í vélinni var svo framherjinn Alfreð Finnbogason sem gaf súkkulaði húðaða lakkrísinn Þrist til þeirra sem komu framhjá.

Myndirnar sem fylgja með fréttinni sýna þetta.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner