Sergio Aguero, sóknarmaður Manchester City, viðurkennir að hann hafi verið heppinn að sleppa með brotið rifbein úr umferðaróhappinu í Hollandi.
Argentínski landsliðsmaðurinn gat ekki spilað í sigrinum gegn Ekvador eftir að leigubíll sem hann var í keyrði á súlu.
Argentínski landsliðsmaðurinn gat ekki spilað í sigrinum gegn Ekvador eftir að leigubíll sem hann var í keyrði á súlu.
Aguero, sem er 29 ára, segir að slysið hefði getað orðið verra ef hann hefði ekki verið í bílbelti þegar áreksturinn átti sér stað.
„Ég þakka fyrir að hafa verið í belti, ég er ekki viss um að ég gæti verið hér að tala um þetta ef svo hefði ekki verið," segir Aguero.
Hann er byrjaður að æfa aftur með City en ekki er vitað hvenær hann mun ná að snúa aftur á keppnisvöllinn.
Athugasemdir