Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 12. október 2017 19:16
Ívan Guðjón Baldursson
Ásgeir Börkur hjá Fylki næstu tvö árin (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Ásgeir Börkur Ásgeirsson er búinn að skrifa undir nýjan samning við Fylki.

Ásgeir Börkur er uppalinn Árbæingur og hefur spilað sem miðjumaður fyrir Fylki, Selfoss, Sarpsborg og GAIS.

Samningur Ásgeirs gildir til haustsins 2019, en fyrirliðinn grjótharði var valinn besti leikmaður Inkasso-deildarinnar í sumar.

„Það er ánægjuefni að hafa klárað samning við fyrirliða Fylkis. Hann átti frábært tímabil og leiddi liðið áfram til sigurs í Inkasso. Ásgeir er mikil fyrirmynd yngri leikmanna og iðkenda í Fylki," sagði Þorvaldur Árnason, formaður meistaraflokksráðs Fylkis.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner