Knattspyrnudeild Selfoss og Guðjón Orri Sigurjónsson komust að samkomulagi um samningsriftun.
Guðjón Orri gekk til liðs við Selfoss fyrir sumarið og var einn af betri markvörðum Inkasso-deildarinnar á tímabilinu, þar sem hann lék 31 leik með Selfyssingum í öllum keppnum.
Guðjón Orri gekk til liðs við Selfoss fyrir sumarið og var einn af betri markvörðum Inkasso-deildarinnar á tímabilinu, þar sem hann lék 31 leik með Selfyssingum í öllum keppnum.
„Knattspyrnudeild Selfoss þakkar Guðjóni Orra fyrir hans framlag til félagsins og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni," segir í yfirlýsingu frá stjórn knattspyrnudeildar Selfoss.
Guðjón var áður í herbúðum Stjörnunnar og ÍBV.
Selfoss endaði í 8. sæti Inkasso-deildarinnar, með 28 stig úr 22 leikjum og neikvæða markatölu.
Athugasemdir