Nýjasti FIFA leikurinn, FIFA 18, er að margra mati sá raunhæfasti og flottasti hingað til.
Þrátt fyrir frábæra tækni sem getur fært andlit knattspyrnumanna yfir í tölvuleikinn er þýski miðjumaðurinn Sami Khedira ósáttur með hárgreiðsluna sína í leiknum.
Þrátt fyrir frábæra tækni sem getur fært andlit knattspyrnumanna yfir í tölvuleikinn er þýski miðjumaðurinn Sami Khedira ósáttur með hárgreiðsluna sína í leiknum.
Khedira var með nokkuð sítt hár, eða svokallaða Fabio-hárgreiðslu, þegar hann var hjá Real Madrid, en skömmu eftir komu sína til Juventus fyrir tveimur árum lét hann klippa sig. Khedira hefur viðhaldið stuttu hári síðan þá, en þrátt fyrir það er hann með sítt hár í nýjustu útgáfu leiksins.
„Hey @EASportsFIFA, ég er mjög ánægður að ykkur finnst sítt hár fara mér vel... en ég er búinn að vera stuttklipptur í næstum því tvö ár..." skrifaði Khedira á Twitter.
Hey @EASPORTSFIFA , I'm really glad you like my long hair... but I'm wearing it short for almost two years now... 🙄😄💇🏻♂ #FIFA18 #SK6 pic.twitter.com/0MHsBZk3Bp
— Sami Khedira (@SamiKhedira) October 12, 2017
Athugasemdir