Skhodran Mustafi, varnarmaður Arsenal, verður frá keppni næstu fjórar til sex vikurnar vegna meiðsla aftan í læri.
Hinn 25 ára gamli Mustafi meiddist í 5-1 sigri þýska landsliðsins á Aserbaídsjan í undankeppni HM á sunnudag.
Hinn 25 ára gamli Mustafi meiddist í 5-1 sigri þýska landsliðsins á Aserbaídsjan í undankeppni HM á sunnudag.
„Við höfum misst Mustafi í fjórar til sex vikur," sagði Arsene Wenger, stjóri Arsenal, á fréttamannafundi í dag.
„Ég held að hann verði ekki klár í slaginn fyrr en eftir næsta landzsleikjahlé."
Tæpur mánuður er í næsta landsleikjahlé en þá fer fram umspil um sæti á HM sem og vináttuleikir.
Athugasemdir