Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
Ómar Ingi: Eðlilega verður róðurinn þyngri
Siggi Höskulds: Áttum að skora miklu fleiri mörk
Mikael: Ef menn vilja vera áfram í KFA þurfa menn að horfa á þennan leik
Eyþór: Talað um báða titlana frá fyrsta samtali
banner
   lau 12. nóvember 2016 20:21
Jóhann Ingi Hafþórsson
Aron: Ætlaði að pressa Modric en hann var bara farinn
Icelandair
Aron Einar Gunnarsson
Aron Einar Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson var svekktur eftir 2-0 tap gegn Króatíu í undankeppni HM í dag .

Þrátt fyrir ágætis kafla í leiknum, tókst Íslendingum ekki að fá neitt úr leiknum gegn sterku liði Króata. Aron var svekkur að hafa ekki fengið eitthvað úr leiknum þar sem honum fannst jafntefli vera sanngjörn úrslit.

„Þetta var svekkjandi tap. Þeir hefðu ekki getað kvartað mikið ef þetta hefði verið jafnt en þeir eru klókir og þeir refsta."

Aron var sérstaklega ánægður með fyrri hálfleikinn.

„Við nýttum ekki fyrri hálfleikinn eins og við hefðum átt að gera. Við vorum með leikinn í fyrri hálfleik en þeir eru sterkir á heimavelli. Við verðum að taka þá á heimavellinum okkar."

Luka Modric kom inná í hálfleik og við það styrktist króatíska liðið töluvert.

„Þetta er toppleikmaður og maður sér það. Ég ætlaði að pressa hann einu sinni og þá var hann farinn. Hann var samt ekki að skapa mikið." sagði Aron Einar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner