Nicklas Bendtner hefur hlotið endurnýjun lífdaga hjá norsku meisturnum í Rosenborg.
Bendtner gekk í raðir Rosenborg í mars síðastliðnum og kom það nokkuð á óvart enda leikmaður sem hafði lengi baðað sig í sviðsljósinu hjá Arsenal lengi vel.
Bendtner tók norska boltann alvarlega og endaði sem markahæsti leikmaður norsku deildarinnar með 19 mörk er Rosenborg varð meistari í enn eitt skiptið.

Hann er þakklátur fyrir tímann sem hann hefur fengið hjá Rosenborg, hann er mjög ánægður.
„Ég sit hér og hugsa um hvernig ég eigi að lýsa tímabilinu." Svona hefst færsla sem Bendtner birtir á Instagram.
„Ég held að þetta sé í fyrsta skipti á ferli mínum þar sem allt fer eftir plani. Reyndar er þetta í fyrsta sinn þar sem ég hef ekki þurft að hugsa um neitt en að njóta mín og undirbúa komandi verkefni."
„Að hafa náð svona langt eftir að hafa byrjað upp á nýtt í mars þá
skulda ég Rosenborg þakklætisvott; liðinu mínu, þjálfurum, stuðningsmönnum og öllum bak við tjöldin."
Sjá einnig:
„Bendtner er of góður fyrir norsku úrvalsdeildina"
Athugasemdir