Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 12. desember 2017 21:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
England: Jóhann Berg og félagar upp í fjórða sætið
Mynd: Getty Images
Burnley 1 - 0 Stoke City
1-0 Ashley Barnes ('89 )

Jóhann Berg Guðmundsson og liðsfélagar í Burnley eru komnir upp í fjórða sæti ensku úrvalsdeildinnar! Burnley fékk Stoke í heimsókn í kvöld og úr varð mikill baráttuleikur.

Stoke byrjaði betur og var sterkari aðilinn lengi vel. Peter Crouch átti meðal annars tilraun sem fór í stöngina.

Þrátt fyrir að Stoke hefði verið að spila betur, var það Burnley sem stal sigrinum. Sigurmark Burnley kom á 89 mínútu og var það Ashely Barnes sem skoraði með aðeins öðru skoti liðsins á markið.

Burnley er nú komið upp í fjórða sæti deildarinnar og hver veit nema það verði Meistaradeildarbolti á Turf Moor á næsta tímabili. Á meðan er Stoke í 15. sæti með 16 stig og það er pressa á Mark Hughes.

Jóhann Berg spilaði allan leikinn í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner