Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 12. desember 2017 20:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
HM félagsliða: Gremio komst í úrslit eftir framlengingu
Mynd: Getty Images
Gremio 1 - 0 Pachuca
1-0 Everton ('94)

Brasilíska liðið Gremio þurfti framlengingu til að leggja Pachuca frá Mexíkó að velli í undanúrslitum á HM félagsliða í kvöld. Leikið var á Hazza Bin Zayed vellinum í Abu Dhabi.

Það var hart barist í venjulegum leiktíma og bæði lið fengu tækifæri til að skora en tókst ekki að gera það.

Því þurfti að framlengja og í framlengingunni þurfti aðeins að bíða tæpar fimm mínútur eftir fyrsta markinu. Það gerði Everton fyrir Gremio, en það reyndist einnig eina mark leiksins.

Al-Jazira og Real Madrid mætast í hinum undanúrslitaleiknum á morgun. Úrslitaleikurinn er svo á sunnudag.

Sjá einnig:
Real Madrid reynir að vinna HM félagsliða annað árið í röð
Athugasemdir
banner