Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 12. desember 2017 21:59
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hughes: Ekki segja mér að Burnley hafi átt þetta skilið
Mynd: Getty Images
„Ekki segja mér að Burnley hafi átt skilið að vinna, vegna þess að þannig er það ekki," sagði Mark Hughes, stjóri Stoke, eftir 1-0 tap gegn Burnley í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Burnley er nú komið upp í fjórða sæti deildarinnar og hver veit nema það verði Meistaradeildarbolti á Turf Moor á næsta tímabili. Á meðan er Stoke í 15. sæti með 16 stig og það er pressa á Mark Hughes.

„Strákarnir eru í sárum, þeir áttu þetta ekki skilið," sagði Hughes fúll eftir leikinn í kvöld.

„Það verður allt í lagi með okkur, við erum góðir. Við erum að leggja hart að okkur til að snúa genginu við. Ég er ánægður með það sem ég sá frá liðinu í kvöld."

„Burnley vonast til að eitthvað muni detta fyrir þá, þeir eru farnir að gera það að vana sínum."
Athugasemdir
banner
banner