Jóhann Berg Guðmundsson átti flottan leik þegar Burnley lagði Stoke að velli í ensku úrvalsdeildinni á þessu þriðjudagskvöldi.
Sigurmark Burnley kom þegar lítið var eftir af leiknum.
Burnley fer upp í fjórða sæti deildarinnar með sigrinum og hver veit nema það verði Meistaradeildarbolti á Turf Moor á næstu leiktíð.
Sigurmark Burnley kom þegar lítið var eftir af leiknum.
Burnley fer upp í fjórða sæti deildarinnar með sigrinum og hver veit nema það verði Meistaradeildarbolti á Turf Moor á næstu leiktíð.
Sky Sports tekur saman einkunnir eftir alla leiki í ensku úrvalsdeildinni og þessi leikur var engin undantekning. Jóhann Berg fær 7 í einkunn eins og margir aðrir leikmenn Burnley í kvöld.
Einkunnir Burnley: Pope (7), Bardsley (7), Long (6), Ward (6), Tarkowski (7), Defour (7), Cork (7), Jóhann Berg (7), Hendrick (7), Arfield (7), Wood (6).
Varamenn: Taylor (7), Barnes (8).
Einkunnir Stoke: Butland (7), Zouma (7), Shawcross (7), Cameron (7), Pieters (7), Allen (7), Fletcher (6), Sobhi (7), Crouch (7), Diouf (7), Shaqiri (7).
Varamenn: Wimmer (6).
Maður leiksins: Scott Arfield.
Athugasemdir