Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   fös 13. janúar 2017 14:45
Elvar Geir Magnússon
Kjartan og Arnór: Eins og Bandaríkjaforseti væri að mæta
Kjartan Henry og Arnór Smára.
Kjartan Henry og Arnór Smára.
Mynd: Getty Images
„Það mætti halda að forseti Bandaríkjanna hefði verið að mæta á svæðið, það var svo mikið af fjölmiðlafólki," segir Kjartan Henry Finnbogason um skólaheimsóknina sem hann og Arnór Smárason fóru í.

Íslenska landsliðið er að taka þátt í vináttumóti í Kína og fóru Kjartan og Arnór og gáfu af sér til ungra fótboltaaðdáenda í landinu.

„Það var rosalega gaman að koma þarna og greinilega mikið búið að leggja í þessa móttöku," segir Arnór en í sjónvarpinu hér að ofan má sjá frá heimsókninni og hlusta á viðtal við þá tvo.

Ísland býr sig undir úrslitaleik í mótinu en mótherjinn verður Síle á sunnudag. Leikurinn verður 7:35 að íslenskum tíma.

„Það er gaman að spila úrslitaleik í þessu móti. Við sáum Síle spila við Króatíu og þeir eru með hörkulið. Virkilega góðir fótboltamenn og voru vel spilandi og náðu vel saman. Það verður erfiður leikur en skemmtilegt verkefni," segir Arnór og Kjartan bætir við:

„Síle er í fjórða sæti á heimslistanum og er með frábæra leikmenn. Það eru skemmtilegir Suður-Ameríkutaktar í þeim og við verðum að vera vel vakandi."

Sjá einnig:
Myndir: Kjartan og Arnór gáfu af sér í Kína
Athugasemdir
banner
banner
banner