Svo virðist sem að orðastríðið milli Jose Mourinho og Antonio Conte sé loks á enda. Mourinho sagðist tilbúinn að grafa stríðsöxina á fréttamannafundi á föstudag og Antonio Conte hefur nú tekið undir þau orð.
Þjálfararnir hafa átt í orðaskiptum frá því í upphafi árs eftir að ummælu Mourinho um að vilja ekki haga sér eins og trúður á hliðarlínunni fóru illa í Conte.
Þjálfararnir hafa átt í orðaskiptum frá því í upphafi árs eftir að ummælu Mourinho um að vilja ekki haga sér eins og trúður á hliðarlínunni fóru illa í Conte.
Conte var spurður út í nýjustu ummæli Mourinho eftir 0-0 jafnteflið gegn Leicester í dag.
„Ég hélt að ég hefði sagt að þessu væri lokið. Ég veit ekki hvað hann sagði en ég hef ekki áhyggjur, ég missi engan svefn yfir þessu."
Athugasemdir