Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 13. janúar 2018 22:30
Ingólfur Stefánsson
Knattspyrnusambandið mun rannsaka ummæli Jay Rodrigues
Mynd: Getty Images
Jay Rodrigues framherji West Brom mun sæta rannsókn frá enska knattspyrnusambandinu vegna ummæla í garð Gaetan Bong varnarmanns Brighton í viðureign liðanna í dag.

Hvorugur þjálfarinn vildi tjá sig um hvers eðlis ummælin voru eftir leikinn en atvikið var tilkynnt til dómara leiksins, Martin Atkinson, og verður því rannsakað af enska knattspyrnusambandinu.

Atvikið er talið hafa átt sér stað í síðari hálfleik í 2-0 sigri West Brom.
Athugasemdir
banner
banner