Markvörðurinn Trausti Sigurbjörnsson er genginn til liðs við Víking Reykjavík frá Haukum. Trausti spilaði með Víkingum í 2-1 tapi gegn Þrótti á Reykjavíkurmótinu í dag en Róbert Örn Óskarsson aðalmarkvörður liðsins hefur verið að glíma við meiðsli.
Trausti er fæddur árið 1990. Hann lék 11 leiki í Inkasso deildinni með Haukum síðasta sumar.
Trausti sem er uppalinn hjá ÍA hefur eytt mestum tíma á sínum ferli hjá Þrótti Reykjavík en hann lék síðast í Pepsi deildinni með Þrótturum árið 2016.

Athugasemdir