Watford hefur staðfest það að hægri bakvörðurinn Brice Dja Djédjé hafi verið lánaður frá félaginu.
Djédjé er á leið til RC Lens í Frakklandi en þeir leika í annari deild þar í landi.
Þessi 27 ára gamli bakvörður er frá Fílabeinsströndinni og kom til Watford síðasta sumar frá Marseille.
Hann hefur fengið fá tækifæri með Watford á tímabilinu og hann heldur því nú til Frakklands þar sem hann vonast eftir meiri spilatíma.
? | #watfordfc can confirm Brice Dja Djédjé has joined @RCLens on loan until the end of the season.
-- Watford FC (@WatfordFC) January 12, 2018
? https://t.co/x23nEAzqGy pic.twitter.com/qQ6GtKWnGh
Athugasemdir