Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 13. febrúar 2016 11:52
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Sunderland og Man Utd: Rooney fremstur
Mynd: Getty Images
Gríðarlega spennandi helgi í ensku úrvalsdeildinni hefst á viðureign Sunderland og Manchester United.

Það er innan við klukkustund í upphafsflautið í leik sem er gífurlega mikilvægur fyrir bæði lið.

Sunderland þarf sigur í fallbaráttunni á meðan Man Utd þarf að sigra til að halda sér í meistaradeildarbaráttunni.

Jermain Defoe og Dame N'Doye eru fremstu menn heimamanna í dag á meðan Wayne Rooney, Jesse Lingard og Anthony Martial eru fremstir í liði Rauðu djöflanna.

Hinn nítján ára gamli Cameron Borthwick-Jackson er í vinstri bakverðinum hjá Man Utd og þá eru Michael Carrick og Morgan Schneiderlin á miðjunni, með Juan Mata fyrir framan sig.

Sunderland: Mannone; Yedlin, O’Shea, Kone, van Aanholt; Kirchhoff, Cattermole, M’Vila, Khazri; N’Doye, Defoe.

Manchester United: De Gea; Darmian, Smalling, Blind, Borthwick-Jackson; Schneiderlin, Carrick; Lingard, Mata, Martial; Rooney.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner