Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 13. febrúar 2016 17:41
Arnar Geir Halldórsson
Darmian fór úr axlarlið - Frá í nokkrar vikur
Meiddur
Meiddur
Mynd: Getty Images
Bakvarðavandræði Man Utd halda áfram að aukast eftir að í ljós kom að Matteo Darmian verður frá næstu vikurnar.

Ítalinn lenti í samstuði við Wahbi Khazri þegar Man Utd tapaði 2-1 fyrir Sunderland á Leikvangi ljóssins í hádegisleiknum í enska boltanum.

Louis van Gaal, stjóri Man Utd staðfesti eftir leikinn að Darmian hafi farið úr axlarlið og sagði ljóst að hann yrði frá í einhverjar vikur.

Luke Shaw, Marcos Rojo, Ashley Young, Antonio Valencia, Phil Jones og Guillermo Varela eru allir á meiðslalistanum en þeir Donald Love og Cameron Borthwick-Jackson sáu um bakvarðastöðurnar í leiknum í dag eftir að Darmian fór af velli.

Darmian kom til Man Utd frá Torino síðasta sumar og hefur verið fastamaður í byrjunarliðinu á þessari leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner