Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 13. febrúar 2016 20:01
Arnar Geir Halldórsson
Faxaflóamót kvenna: Breiðablik sigrar A-riðil
Fanndís skoraði í dag
Fanndís skoraði í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslandsmeistarar Breiðabliks tryggðu sér sigur í A-riðli Faxaflóamótsins með því að vinna 3-1 sigur á Selfossi í Fífunni í Kópavogi í dag.

Selma Sól Magnúsdóttir kom Blikum yfir áður en Magdalena Anna Reimus jafnaði fyrir Selfoss. Mörk frá Örnu Dís Arnþórsdóttur og Fanndísi Friðriksdóttur tryggðu Blikum svo 3-1 sigur.

Í sama riðli vann Afturelding 2-1 sigur á FH þar sem öll mörk leiksins voru skoruð á fyrstu 22 mínútunum.

Breiðablik 3-1 Selfoss
1-0 Selma Sól Magnúsdóttir (´11)
1-1 Magdalena Anna Reimus (´25)
2-1 Arna Dís Arnþórsdóttir (´32)
3-1 Fanndís Friðriksdóttir (´60)

Afturelding 2-1 FH
1-0 Stefanía Valdimarsdóttir (´5)
1-1 María Selma Haseta (´6)
2-1 Stefanía Valdimarsdóttir (´22)

Athugasemdir
banner
banner
banner