Víkingur Ó. 2-1 Selfoss
1-0 Alfreð Már Hjaltalín (´63)
2-0 Hrvoje Tokic (´71)
2-1 Ragnar Þór Gunnarsson (´86)
1-0 Alfreð Már Hjaltalín (´63)
2-0 Hrvoje Tokic (´71)
2-1 Ragnar Þór Gunnarsson (´86)
Ólafsvíkingar fara vel af stað í Lengjubikarnum en liðið vann eins marks sigur á Selfyssingum í fyrstu umferð riðils 2 í A-deild.
Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Alfreð Már Hjaltalín Ólafsvíkingum yfir eftir rúmlega klukkutíma leik. Skömmu síðar tvöfaldaði Hrvoje Tokic forystuna.
Ragnar Þór Gunnarsson klóraði í bakkann fyrir gestina eftir að hafa komið inná sem varamaður en lokatölur 2-1 fyrir Víkingi Ólafsvík.
Fyrr í dag vann Fylkir 3-1 sigur á Breiðabliki í sama riðli en á morgun mætast 1.deildarlið KA og Fjarðabyggð í Boganum á Akureyri.
Athugasemdir