Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 13. febrúar 2016 16:23
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Dortmund fimm stigum frá Bayern
Mkhitaryan gerði eina mark Dortmund í dag.
Mkhitaryan gerði eina mark Dortmund í dag.
Mynd: Getty Images
Fimm leikjum var að ljúka í þýsku efstu deildinni rétt í þessu þar sem Borussia Dortmund, Stuttgart, Wolfsburg og Bayer Leverkusen unnu sína leiki.

Dortmund hafði betur gegn Hannover með marki frá Henrikh Mkhitaryan og Stuttgart lagði Hertha Berlin að velli.

Bayer Leverkusen rétt marði nýliða Darmstadt og þá hafði Wolfsburg betur gegn Ingolstadt.

Jafnt var í fallbaráttuslag Werder Bremen og Hoffenheim en stöðuna í deildinni er hægt að sjá hér fyrir neðan.

Borussia Dortmund 1 - 0 Hannover
1-0 Henrikh Mkhitaryan ('57)

Stuttgart 2 - 0 Hertha Berlin
1-0 Serey Die ('51)
2-0 Filip Kostic ('84)

Wolfsburg 2 - 0 Ingolstadt
1-0 Julian Draxler ('29)
2-0 Robin Knoche ('39)

Darmstadt 1 - 2 Bayer Leverkusen
1-0 Sandro Wagner ('28)
1-1 Aytac Sulu ('62, sjálfsmark)
1-2 Julian Brandt ('77)

Werder Bremen 1 - 1 Hoffenheim
0-1 Andrej Kramaric ('10)
1-1 Papy Djilobodji ('13)
Rautt spjald: Andrej Kramaric, Hoffenheim ('77)

Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner