Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 13. febrúar 2016 14:55
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Upptaka - Hlustaðu á afmælisþáttinn í heild sinni
Mynd: Fótbolti.net
Komin er inn upptaka frá útvarpsþætti Fótbolta.net í dag en þar voru menn í hátíðarskapi enda sjö ár síðan þátturinn hóf göngu sína á X-inu FM 97,7. Upptakan er í spilaranum hér fyrir neðan.

Það var tvöfalt afmæli í þættinum en Magnús Már Einarsson, annar ritstjóra Fótbolta.net, fagnar 27 ára afmæli sínu í dag. Hann, Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon voru í gasklefanum í dag.

Upptökur af öllum þáttum koma inn á Vísi

Jón Daði Böðvarsson, landsliðsmaður og nýr leikmaður Kaiserslautern, var á línunni beint frá Þýskalandi. Andri Júlíusson var á línunni frá Noregi þar sem fátt er um annað rætt en Eið Smára Guðjohnsen.

Tómas og Magnús völdu úrvalslið sitt í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Um óvenjulegt úrvalslið er að ræða því einungis mátti velja einn leikmann úr hverju liði í deildinni!


Athugasemdir
banner
banner
banner