Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   mán 13. febrúar 2017 22:10
Ívan Guðjón Baldursson
Bjössi Hreiðars: Frábært að fá sigurtilfinninguna í hópinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurbjörn Örn Hreiðarsson, aðstoðarþjálfari Vals, segist ánægður með góðan sigur sinna manna á Fjölni í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins fyrr í kvöld.

„Það er frábært að vinna titil og fá sigurtilfinninguna í hópinn," sagði Sigurbjörn. „Við vissum það í hálfleik að þeir kæmu grimmir út í seinni og við ætluðum að reyna að vera bara klókir og stýra þessu aðeins."

Arnar Sveinn Geirsson átti góðan leik í liði Vals og er Bjössi ánægður með fjölbreytileikann sem hann býður uppá. Arnar spilaði í hægri bakverðinum gegn Fjölni og var einnig fremsti maður Valsara um skeið.

„Arnar byrjaði sinn feril sem kantari og sóknarmaður, hann er fjölhæfur."

Það þykir ljóst að Valsarar ætla að bæta við sig mönnum á næstu vikum og segir Bjössi að félagið sé að leita eftir sterkum leikmönnum í allar stöður.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner