Ágúst Gylfason sér fram á jákvætt sumar hjá Fjölnismönnum sem eru búnir að bæta fjórum útlendingum við leikmannahópinn.
Fjölnir tapaði úrslitaleik Reykjavíkurmótsins gegn Val fyrr í kvöld en Gústi hljómaði sáttur með frammistöðu sinna manna.
Fjölnir tapaði úrslitaleik Reykjavíkurmótsins gegn Val fyrr í kvöld en Gústi hljómaði sáttur með frammistöðu sinna manna.
„Það er bara fúlt að tapa úrslitaleik. Þetta var hörkuleikur, það var mikil barátta og læti. Ungu strákarnir hjá mér hljóta að hafa lært á þessu, setjum þetta í reynslubankann," sagfði Gústi eftir tapið.
„Við mættum hörkuliði Valsara, þeir voru sterkir, tóku vel á móti okkur og unnu leikinn."
Gústi segist vera ánægður með að geta gefið ungum leikmönnum Fjölnis mikilvæga reynslu með því að tefla þeim fram í mikilvægum æfingaleikjum og segir nokkra leikmenn vera væntanlega til félagsins þegar glugginn opnar seinna í febrúar.
„Við erum búnir að gefa þessum ungu strákum gífurlega mikla reynslu og eru þeir búnir að spila fullt af leikjum. Það koma einhverjar styrkingar núna um miðjan mánuðinn og við sjáum til hvernig við stillum þessu upp í fyrsta leik í Lengjubikar, kannski verður það eitthvað annað lið.
„Það eru fjórir útlendingar sem voru ekki með í dag. Marcus fékk högg á móti KR í síðasta leik og skoraði tvö mörk í þeim leik. Svo koma þrír Balkanskagamenn, Igorarnir tveir og Mario. Það er nóg af mönnum að mæta."
Athugasemdir