Haukar hófu Lengjubikarinn í ár á 4-1 sigri gegn Leikni R. í Egilshöllinni um helgina.
Gunnar Gunnarsson, fyrirliði Hauka, fékk beint rautt spjald í stöðunni 2-1 eftir klukkutíma leik. Gunnar átti þá mjög ljóta tveggja fóta tæklingu á Ingvar Ásbjörn Ingvarsson eins og sjá má á myndbandinu hér að neðan.
Brottvísun Gunnars kom ekki að sök fyrir Hauka sem bættu við tveimur mörkum og unnu 4-1.
„Ég heyrði í honum beint um kvöldið og baðst afsökunar. Ég geri mér fulla grein því að þetta var fáránlegt," sagði Gunnar við Fótbolta.net í dag um tæklinguna.
Þórður Einarsson, yngri flokka þjálfari hjá Leikni, birti myndbandið af tæklingunni á Twitter og spyr hvort Gunnar fái bara einn leik í bann fyrir hana.

Þarf ekki að refsa harkalega fyrir svona tæklingar? Varla bara einn leikur? Skal tekið fram að Haukum blöskraði tæklingin og tóku vel á málum. pic.twitter.com/Ce4x6cse4S
— Þórður Einarsson (@doddi_111) February 13, 2018
Athugasemdir