þri 13. febrúar 2018 17:40
Elvar Geir Magnússon
Topp 20 - Vinsælastir í treyjusölu
Síðan 1. janúar
Alexis Sanchez er vinsæll.
Alexis Sanchez er vinsæll.
Mynd: Getty Images
Harry Kane, sóknarmaður Tottenham.
Harry Kane, sóknarmaður Tottenham.
Mynd: Getty Images
Leikmenn Manchester United eru áberandi á lista yfir 20 vinsælustu nöfnin aftan á treyjum þegar horft er til sölu á Bretlandseyjum síðan 1. janúar.

Alexis Sanchez er vinsælastur og Paul Pogba kemur í öðru sæti.

Á lista eru einnig Zlatan Ibrahimovic, Romelu Lukaku, David de Gea og Marcus Rashford.

Henrikh Mkhitaryan, sem fór til Arsenal í skiptum fyrir Sanchez, er í 19. sæti listans.

Þrír leikmenn Liverpool eru á lista, fjórir frá Tottenham og þrír frá Arsenal. Eden Hazard er eini leikmaður Chelsea á listanum og topplið Manchester City er bara með Kevin De Bruyne og Sergio Aguero á listanum.

Philippe Coutinho sker sig úr en hann er sá eini á listanum sem spilar ekki í ensku úrvalsdeildinni. Barcelona keypti Brassann frá Liverpool.

1. Alexis Sanchez
2. Paul Pogba
3. Harry Kane
4. Mohamed Salah
5. Eden Hazard
6. Philippe Coutinho
7. Kevin De Bruyne
8. Mesut Özil
9. Roberto Firmino
10. Zlatan Ibrahimovic
11. Alexandre Lacazette
12. Sergio Aguero
13. Romelu Lukaku
14. David de Gea
15. Son Heung-min
16. Virgil van Dijk
17. Dele Alli
18. Marcus Rashford
19. Henrikh Mkhitaryan
20. Christian Eriksen
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner