banner
   þri 13. mars 2018 12:07
Elvar Geir Magnússon
Hárið á Fellaini sýnt í nýju ljósi
Hárið á Fellaini eins og þú hefur aldrei séð það áður!
Hárið á Fellaini eins og þú hefur aldrei séð það áður!
Mynd: GQ
Marouane Fellaini, miðjumaður Manchester United, er með eitt frægasta hár heimsfótboltans.

Það eru skiptar skoðanir á fótboltahæfileikum belgíska landsliðsmannsins en allir elska afro-greiðsluna hans. Eða er það ekki?

Fellaini fór í myndatöku fyrir tímaritið GQ þar sem hægt er að sjá hárið í nýju ljósi, meðal annars í anda Mikka mús.

Þessi þrítugi leikmaður fór í viðtal við GQ í aðdraganda HM í fótbolta þar sem hann verður í sviðsljósinu með Belgíu.

Reglulega er Fellaini orðaður við sölu frá Manchester United en hann hefur reynst liðinu notadrjúgur í gegnum árin. Jose Mourinho hefur notað hann mikið.

„Ég hef lært mikið með honum. Jose er aðili sem vill vinna hvern einasta leik og ýtir leikmönnum til að fá eins mikið úr þeim og hægt er," segir Fellaini í viðtalinu við GQ.

Margir spá því að Belgía geti farið alla leið og orðið heimsmeistari í fyrsta sinn í Rússlandi í sumar.

„Við verðum að gera betur en við gerðum á síðasta HM og á EM. Við höfum gríðarlega öflugan hóp og höfum bætt við okkur fjórum árum af reynslu. Við erum tilbúnir og viljum skapa eitthvað sérstakt fyrir belgíska stuðningsmenn," segir Fellaini.
Athugasemdir
banner
banner
banner