Nýliðar Njarðvíkur í Inkasso-deildinni hafa samið við króatíska miðjumanninn Luka Jagacic.
Luka þekkir vel til á Íslandi því hann spilaði með Selfossi frá 2013 til 2015 í næstefstu deild.
Samtals skoraði Luka sjö mörk í 56 deildar og bikarleikjum með Selfyssingum en hann spilaði þar aftarlega á miðjunni.
Hinn 27 ára gamli Luka kemur til Njarðvíkinga frá heimalandi sínu Króatíu þar sem hann spilaði síðast í neðri deildunum.
Njarðvík gerði 2-2 jafntefli við ÍBV í Lengjubikarnum um síðustu helgi en liðið er með fjögur stig eftir jafnmarga leiki.

Komnir:
Helgi Þór Jónsson frá Víði Garði
Hlynur Örn Hlöðversson frá Breiðabliki á láni
Luka Jagacic frá Króatíu
Sigurbergur Bjarnason frá Keflavík
Unnar Már Unnarsson frá Víði Garði
Farnir:
Brynjar Atli Bragason í Víði á láni
Gualter Aurelio Oliveira Bilro til Portúgal
Hörður Fannar Björgvinsson í Álftanes á láni
Athugasemdir