Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 13. mars 2018 06:00
Fótbolti.net
Skráning í sjö manna utandeildina í fullum gangi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leiknir í Breiðholti stendur fyrir sjö manna utandeild í sautjánda sinn í sumar. Deildin hefur verið gríðarlega vinsæl undanfarin ár og keppendur á ári hverju um 500 í 30-40 liðum að sumri til og um 250 í 20 liðum í sérstakri vetrardeild.

Mótið er með sama sniði og undanfarin ár. Leikið er 2×25 mínútur á félagssvæði Íþróttafélagsins Leiknis.

Keppni fer fram í sumar og hefst í byrjun maí og fær hvert lið að meðaltali 11 leiki. Leikið er eftir reglum KSÍ um 7 manna-bolta og leikmenn sem leika í efstu og 1. deild eru ekki löglegir í mótinu.

Leikir í deildarkeppninni fara fram í miðri viku en bikarkeppnin er leikin á sunnudögum. Keppnisgjald í Gulldeildina er krónur 90.000 fyrir liðið og skulu þau lið sem hafa áhuga á að taka þátt senda þátttökutilkynningu á [email protected] . Þar þarf að koma fram nafn liðs, tveir tengiliðir, símanúmer og netfang.

Greiða þarf staðfestingargjald 35.000 kr. og fullnaðargreiðsla þarf að berast fyrir 5. apríl. Liðin sem tóku þátt í deildinni síðasta sumar hafa forgang í deildina til 15. febrúar.
Athugasemdir
banner
banner