Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 13. maí 2013 08:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Christian Eriksen vill spila fyrir Dortmund
Christian Eriksen, leikmaður Ajax, er mjög spenntur fyrir að spila með Borussia Dortmund og segir að þýska úrvalsdeildin sé mögulega sú sterkasta í heimi um þessar mundir.

Eriksen hefur verið lykilmaður í liði Ajax sem vann hollenska titilinn í ár, en danski miðjumaðurinn skoraði tíu mörk.

Hefur hann verið sterklega orðaður við stórlið í Evrópu, og nú hefur Dortmund bæst við í hópinn eftir að félagið seldi Mario Götze til Bayern München.

,,Dortmund er flottur klúbbur sem ég myndi vilja spila fyrir," sagði Eriksen.

,,Ég held að ég yrði í góðum höndum hjá Dortmund. Þeir spila sóknarsinnaðan og fallegan fótbolta, alveg eins og ég vil hafa það. Og þeir berjast um titla."

,,Fyrir nokkrum árum sá ég það ekki fyrir mér að fara til Þýskalands, en nú er þýski boltinn orðinn betri. Það segir margt þegar tvö þýsk lið leika til úrslita í Meistaradeildinni. Það gæti vel verið að Bundesligan sé nú sterkasta deildin."

Slapp
banner
banner