David Moyes kvaddi Goodison Park í gær þegar hann stýrði Everton í síðasta heimaleik deildarinnar sem endaði með 2-0 sigri gegn West Ham.
Moyes fékk frábærar móttökur frá stuðningsmönnum Everton og gekk hann heiðurshring eftir leikinn á Goodison park og klöppuðu stuðningsmennirnir honum lof í lófa.
Moyes fékk frábærar móttökur frá stuðningsmönnum Everton og gekk hann heiðurshring eftir leikinn á Goodison park og klöppuðu stuðningsmennirnir honum lof í lófa.
Moyes var gáttaður á móttökunum en hann verður arftaki Sir Alex Ferguson hjá Manchester United eftir tímabilið.
,,Ég var virkilega heppinn að hafa fengið svona móttökur," sagði Moyes.
,,Það var mjög tilfinningarík stund þegar ég kom. Allir stóðu og klöppuðu fyrir mér þegar ég gekk inn. Ég vissi ekki hvað ég átti að gera."
,,Ég er mjög þakklátur fyrir það sem fólkið hjá Everton sýndi mér. En það sem skipti mestu máli var frammistaða liðsins og leikmennirnir stóðu sig frábærlega. Hver sá sem tekur við liðinu mun njóta þess að vinna með leikmönnnunum."


