Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mán 13. maí 2013 10:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Neymar til Real Madrid?
Powerade
Hér að neðan má sjá helsta slúður dagsins sem BBC hefur tekið saman.



Real Madrid vonast til að hafa betur gegn Barcelona með því að kaupa Neymar frá Santos á 59 milljónir punda. Neymar er með klásúlu sem leyfir honum að fara fyrir þá upphæð en Barcelona vill ekki borga meira en 25 milljónir punda fyrir leikmanninn. (AS)

Framtíð Wayne Rooney er ennþá í óvissu eftir að hann óskaði eftir sölu og bað um að vera ekki í leikmannahópnum gegn Swansea í gær. (Daily Star)

Pep Guardiola vill fá Jack Wilshere miðjumann Arsenal til FC Bayern í framtíðinni en ólíklegt er að félagaskiptin gangi í gegn í sumar. (Metro)

Harry Redknapp, stjóri QPR, vill fá Gary Hooper framherja Celtic í sínar raðir en hann hefur skorað 29 mörk á tímabilinu. (Daily Mirror)

Phil Neville á eftir að ákveða hvort hann haldi áfram í fótbolta eða hætti í sumar þegar hann yfirgefur herbúðir Everton. (Sky Sports)

Martin Jol, stjóri Fulham, ætlar að fá sex nýja leikmenn á næsta tímabili. (Ealing Gazette)

Dave Whelan, eigandi Everton, segir að Wigan sé ekki nægilega stórt félag til að krækja í Roberto Martinez. (Daily Mirror)

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segist ekki hafa átt í viðræðum við PSG. (Sporting Life)

Harry Redknapp tók Jose Bosingwa af velli í hálfleik gegn Newcastle í gær þar sem hann fékk óblíðar móttökur hjá stuðningsmönnum QPR. (Fulham Chronicle)
Slapp
banner
banner