Heimild: BBC
Manuel Pellegrini, þjálfari Malaga, segist ekki hafa náð samkomulagi við Manchester City um að taka við liðinu af Roberto Mancini.
Orðrómur hefur verið um að Pellegrini sé búinn að ná samkomulagi um að taka við City í sumar.
Orðrómur hefur verið um að Pellegrini sé búinn að ná samkomulagi um að taka við City í sumar.
,,Ég neita því algjörlega að ég sé nýr þjálfari Manchester City," sagði Pellegrini.
,,Ég er með samkomulag við Malaga um að tala ekki við neinn og ég hef ekki samið við neina aðra. Það hefur ekki verið skrifað undir neitt og ég er ekki búinn að semja."
,,Ég hef verið heppinn og ég er mjög stoltur af því að stór félög hafa áhuga á mér á hverju ári. Ég vona að framtíðin skýrist betur á næstu dögum."

