Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 13. maí 2013 07:30
Sebastían Sævarsson Meyer
Rafael Benítez á eftir nýju starfi í ensku úrvalsdeildinni
Rafael Benítez er byrjaður að leita að nýju starfi en hann vill vera áfram í ensku úrvalsdeildinni eftir að hann hættir með Chelsea í sumar.

Benítez hefur ekki verið í miklu uppáhaldi stuðningsmanna Chelsea eftir að hann tók við liðinu í nóvember út tímabilið. Undir hans stjórn hefur liðið þó tryggt sér sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð og auk þess leikur liðið til úrslita í Evrópudeildinni á miðvikudaginn gegn Benfica.

Sama hvernig fer þá er ljóst er að Benítez mun ekki halda áfram með Chelsea eftir tímabilið, en hann er viss um að hann fái nýtt starf fyrir næstu leiktíð.

,,Leitin er hafin, umboðsmenn mínir eru að vinna í þessu. Mitt hlutverk er að einbeita mér að lekjunum og umboðsmenn mínir sjá um viðræður," sagði Benítez.

,,Enska úrvalsdeldin er frábær deild, það yrði auðveldara að vera áfram í Englandi þar sem fjölskylda mín býr enn, en ef ekkert fæst þar mun ég fara erlendis. Mér er ekki illa við spænsku, ítölsku eða frönsku deildirnar."

,,Áður en ég kom til Chelsea var ég í fríi í tvö ár. Ég vil annað starf, helst í Englandi. Ég er að leita að topp liði eða liði sem hægt er að byggja upp."

,,Það er tvennt í boði, annað hvort tek ég við liði þar sem ég fæ tvö eða þrjú ár til að byggja upp, eins og hjá Liverpool, eða stórliði með peninga þar sem hægt er að kaupa leikmenn og jafnvel barist um titla frá byrjun."

,,Ég er viss um að fá tilboð. Nú þegar höfum við fengið fyrirspurnir frá félögum, en það fer allt eftir á hvaða stigi þau eru eða hvaða verkefni eru í boði."

Slapp
banner
banner