Real Sociedad getur endurheimt fjórða sætið í spænsku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið tekur á móti Granada í kvöld.
Valencia komst upp fyrir Real Sociedad í gær eftir 4-0 sigur á Rayo Vallecano og vonast til að Real Sociedad misstígi sig í kvöld.
Valencia komst upp fyrir Real Sociedad í gær eftir 4-0 sigur á Rayo Vallecano og vonast til að Real Sociedad misstígi sig í kvöld.
Valencia og Real Sociedad eru í mikilli baráttu um fjórða sætið, en það gefur þátttökurétt í undankeppni Meistaradeildarinnar á næstu leiktíð.
Valencia er með 59 stig eftir sigurinn í gær en Real Sociedad er með 58 stig og getur bætt við þremur stigum í kvöld.
Granada hefur hins vegar verið í fallbaráttu og er þremur stigum frá fallsæti.
Í kvöld:
20:00 Real Sociedad - Granada




