Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 13. maí 2013 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Subway-mót 5. flokks ÍR
Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
Fyrsta Subway-mót 5. flokks karla hjá ÍR fór fram á Hertz-vellinum í Mjóddinni á uppstigningardag.

Tíu félög voru skráð til keppni og voru þau, auk gestgjafanna: ÍA, Keflavík, Afturelding, Álftanes, Hrunamenn, Reynir í Sandgerði, Haukar, Njarðvík og Hamar. Leikið var í A, B, C og D-liðum, en misjafnt var hversu mörg lið komu frá hverju félagi. Hvert lið var skipað sex leikmönnum (auk varamanna) og var hver viðureign háð á fjórðungi venjulegs knattspyrnuvallar.

Það varð ljóst strax í rauða bítið að þetta mót yrði alveg meiriháttar. Veðurguðirnir sáu til þess að þátttakendurnir og allir sem á Hertz-völlinn komu væru sólarmegin í tilverunni (sólin lét sig reyndar hverfa áður en mótinu lauk, en veðrið hélst þó áfram gott) og Jói formaður bauð upp á stemningstónlist sem hljómaði um ÍR-svæðið áður en flautað var til fyrstu leikjanna og eins á milli leikja. Þetta var sannkölluð sólskinsmúsík, sem allir kunnu að meta, og vafalítið hefur Jói verið diskótekari á Skaganum hér í den.

En þá almennt um leikina. Leikgleðin skein úr hverju andliti keppenda og allir gerðu sitt besta. Eitt ÍR-liðið skoraði mark eftir glæsilega samspilsókn og leikmaður ÍA skoraði skeytin inn úr langskoti. Tilþrifin voru mögnuð hvert sem litið var. Strákarnir klobbuðu, tóku Zidane og eitthvað var um skæri. Víða sáust flott þríhyrningsspil og vel tímasettar tæklingar. Þá létu markverðirnir oft til sín taka og vörðu glæsilega.

Í svona móti eru allir sigurvegarar, enda fékk hver einasti strákur verðlaunapening í lokin, sem og gómsætan Subway-bát sem auðvitað gerði mikla lukku því gaurarnir voru orðnir glorhungraðir eftir öll hlaupin og spörkin. Og hvað er þá betra en slíkur biti?

Það er samdóma álit þeirra sem að mótinu stóðu, sumsé foreldra drengja í 5. flokki ÍR, að vel hafi tekist til og því er ætlunin að halda annað svona mót að ári. Vilyrði fyrir góðu veðri á uppstigningardaginn 2014 liggur fyrir, enda eru veðurguðirnir bæði áhugasamir um knattspyrnu og Subway-báta.

Í lokin vilja svo aðstandendur mótsins þakka öllum keppendunum, þjálfurunum, foreldrunum og öðrum fyrir ánægjulegt Subway-mót.
Slapp