sun 13. ágúst 2017 07:45
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Joe Hart hafði ekki hugsað sér að fara aftur á láni
Joe Hart mun leika á láni hjá West Ham í vetur.
Joe Hart mun leika á láni hjá West Ham í vetur.
Mynd: Getty Images
Joe Hart sem fór til West Ham í sumar á lánssamningi segist ekki hafa hugsað sér að fara aftur á láni frá Manchester City og vildi helst vera seldur.

„Að skipta um félag hefði verið erfitt, ég held að það hafi ekki verið margir möguleikar fyrir mig þegar það kom að því að skipta um félag. En ég hafði upphaflega hugsað mér það."

„Þegar þið spyrjið mig spurninga svara ég alltaf heiðarlega, ég vildi helst skipta um félag," sagði Joe Hart við Sky Sports.

Þessi 30 ára gamli markvörður lék á láni hjá Torino á síðasta tímabili og eins og fyrr segir leikur hann nú á láni hjá West Ham.

Það má búast við því að Joe Hart verði í markinu hjá West Ham þegar liðið heimsækir Manchester United á Old Trafford í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner