mið 13. september 2017 06:00
Þórarinn Jónas Ásgeirsson
Ingi Freyr og Orri framlengja við Þór
Orri Sigurjónsson gerði tveggja ára samning við Þór
Orri Sigurjónsson gerði tveggja ára samning við Þór
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Ingi Freyr Hilmarsson og Orri Sigurjónsson, leikmenn Þórs frá Akureyri, hafa báðir framlengt samninga sína við félagið.

Báðir leikmenn hafa verið lykilmenn í liði Þórs á síðustu árum. Í sumar hefur Orri spilað 18 leiki fyrir Þór í Inkasso deildinni en Ingi Freyr hefur ekkert spilað í sumar vegna meiðsla.

Orri Sigurjónsson skrifaði undir tveggja ára samning við Þór en Ingi Freyr framlengdi um eitt ár.

Ingi Freyr, sem er þrítugur varnarmaður, kom til Þórs árið 2011 og hefur hann spilað 110 leiki fyrir félagið síðan þá og skorað í þeim 4 mörk.

Orri, sem er 23 ára gamall miðjumaður, er uppalinn Þórsari og hefur spilað 63 leiki fyrir félagið og skorað í þeim þrjú mörk.
Athugasemdir
banner
banner
banner