Jasper Cillessen, markvörður hollenska landsliðsins, rauk úr viðtali við fjölmiða í kvöld eftir 2-0 tap hollenska landsliðsins gegn Íslandi í undankeppni EM.
Gylfi Þór Sigurðsson kom íslenska liðinu yfir úr vítaspyrnu sem Jasper Cillessen kom engum vörnum við áður en Gylfi bætti við öðru marki eftir hornspyrnu.
Cillessen var mættur í viðtal eftir leik og var augljóslega brjálaður yfir úrslitunum. Hann sést rjúka úr viðtali hér fyrir neðan.
,,Já, við vildum vinna og gerðum það ekki svo það eru vonbrigði. Þeir komu ekki á óvart, við vissum við hverju var að búast og spiluðum ekki okkar leik," sagði Jasper.
,,Það var erfitt að finna svör því við fundum þau ekki," sagði hann ennfremur.
Cillessen var síðan spurður að því hvort honum hafi fundist hollenska liðið spila illa, þá brást hann illa við og vildi ekki svara því.
,,Ég veit það ekki, ég ætla ekki að svara þessu," sagði hann að lokum.
Athugasemdir