Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 13. október 2015 21:40
Fótbolti.net
Samantekt - Gylfi og Aron bestir í undankeppninni
Icelandair
Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gylfi Þór Sigurðsson var besti leikmaður Íslands í undankeppni EM samkvæmt einkunnagjöf Fótbolta.net. Riðlakeppninni er lokið og fengu leikmenn einkunnir eftir alla leiki, Gylfi er með 7,9 í meðaleinkunn.

Fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson kemur á hæla Gylfa en notast þurfti við fleiri aukastafi til að fá úr því skorið hvor þeirra hefði endað ofar.

Gylfi er sá eini sem hefur fengið 10 fyrir leik en Aron fékk nokkrum sinnum 9.

Rúrik Gíslason, Eiður Smári Guðjohnsen og Ögmundur Kristinsson léku allir færri en þrjá leiki með einkunnagjöf og eru ekki á listanum.

Einkunnir Íslands:
Gylfi Þór Sigurðsson 7,9
Aron Einar Gunnarsson 7,89
Ragnar Sigurðsson 7,7
Kári Árnason 7,4
Ari Freyr Skúlason 7
Hannes Þór Halldórsson 7
Jón Daði Böðvarsson 6,8
Kolbeinn Sigþórsson 6,7
Birkir Bjarnason 6,6
Birkir Már Sævarsson 6,5
Emil Hallfreðsson 6,5
Elmar Bjarnason 6,5
Jóhann Berg Guðmundsson 6,5


*Á listanum eru leikmenn sem hafa fengið einkunnir fyrir 4 leiki eða meira.
*Spila þarf a.m.k. 20 mín í leik til að fá einkunn

Athugasemdir
banner
banner
banner