Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 13. október 2015 10:41
Magnús Már Einarsson
Cisse handtekinn fyrir að hóta að birta kynlífsmyndband
Djibril Cisse.
Djibril Cisse.
Mynd: Getty Images
Franski framherjinn Djibril Cisse var í gær handtekinn í heimalandi sínu ásamt þremur öðrum aðilum.

Aðilarnir höfðu hótað að birta kynlífsmyndband af öðrum fótboltamanni ef hann myndi ekki greiða þeim háa fjárhæð.

Lögregla hefur ekki viljað birta nafnið á fótboltamanninum sem fékk hótunina en samkvæmt frönskum fjölmiðlum er það Mathieu Valbuena leikmaður Lyon og fyrrum liðsfélagi Cisse hjá Marseille.

Cisse og þrír aðrir voru handteknir fyrir fjárkúgun en lögreglan er að rannsaka málið.

Hinn 34 ára gamli Cisse spilar í dag með JS Saint-Pierroise í neðri deildunum í Frakklandi en á ferli sínum hefur hann meðal annars leikið með Liverpool, Sunderland, QPR, Panathinaikos og Lazio.
Athugasemdir
banner
banner
banner